Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands

1.jpg

Um NSHÍ



Skrifstofu- og viðtalstímar

  • Opnir viðtalsímar eru frá mánudegi til fimmtudags milli 13.00-16.00 og á föstudögum milli 10.00-12.00. Öllum er frjálst að nýta sér þá tíma
  • Nemendur HÍ geta bókað viðtal hjá Náms- og starfsráðgjafa eftir samkomulagi í síma 525 4315
  • Skrifstofa Náms- og starfsráðgjafar er opin alla virka daga frá 9.00-12.00 og 13.00-16.00

Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands býður fjarnemum skólans og öðrum þeim sem ekki hafa möguleika á að nýta sér opna viðtalstíma að hringja á skrifstofu Náms- og starfsráðgjafar í síma 525-4315.

Á erindi mitt heima hjá Náms- og starfsráðgjöf?

Ef erindi þitt snertir mat á námi á milli deilda eða úr öðrum skólum, yfirferð námsferils vegna fyrirhugaðrar útskriftar eða skipulag og uppbyggingu einstakra námskeiða á það hins vegar heima á skrifstofu viðkomandi deildar.

Ef þú ert að velta fyrir þér inntökuskilyrðum inn í skólann og hvort þú hafir nægan undirbúning fyrir það nám sem hugur þinn stendur til þá viljum við benda þér á upplýsingar um inntökuskilyrði einstakra deilda sem má finna á vef Háskóla Íslands og upplýsingar um undanþágur frá inntökuskilyrðum sem má finna í kennsluskrá HÍ.